Gular viðvaranir eru í gildi um nær allt land í dag vegna norðaustan- og austanhvassviðris eða storms með snjókomu og skafrenningi. Fjöldi vega er á óvissustigi og gæti þeim verið lokað með stuttum fyrirvara, þar á meðal helstu leiðum til og frá höfuðborgarsvæðinu.Samkvæmt veðurspá má búast við vaxandi vindi, víða 13 til 20 metrum á sekúndu og allt að 28 metrum á sekúndu sunnan- og austantil. Talsverðri snjókomu er spáð eftir því sem líður á daginn. LAUSAMJÖLL UM ALLT LAND „Það er verst hvað það er mikil lausamjöll um allt land. Hún fer af stað og myndar kóf í svona tólf, þrettán, fjórtán metrum á sekúndu og það er sá vindur sem er spáð í dag,“ segir Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Vegagerðinni, sem var gestur í hádegisfréttum RÚV í dag.Að sögn Einars er víða þungfært og ekki l