Þegar fréttateymi Kastljóss kom í Hrísey vorið 1978 voru þar fjórir ungir drengir sem voru töluvert áhugasamir um erindagjörðir þeirra. Þetta voru Anton Steinarsson, Þröstur Jóhannsson, Sigmar Friðbjörnsson og Hrannar Björn Friðbjörnsson.Þeir voru spurðir út í lífið í eynni, hvort þeir hygðust búa þar alla ævi og við hvað þeir ætluðu að vinna í framtíðinni. Strákarnir gáfu ýmis skemmtileg svör og virtust lítið feimnir við myndavélina.Landinn hitti fjórmenningana í Hrísey og endurtók viðtalið undir sama húsvegg.Landinn er á dagskrá á sunnudagskvöldum kl. 19.45.