Verslun Next í Kringlunni verður lokað í næstu viku. Frá þessu er greint á Facebook-síðu Next á Íslandi.Þar segir að allar vörur eru á 50 prósenta afslætti en ekki er hægt skila þeim. Next er í stóru verslunarrými á 2. hæð í Kringlunni, við hliðina á H&M.Next á Íslandi lokar 4. apríl.Skjáskot / FacebookNext hefur verið starfrækt á Íslandi um árabil. Stofnendur eru Sverrir Berg Steinarsson og Ragnheiður Anna Jónsdóttir.Verslunin lokar laugardaginn 4. apríl.