Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Allt innra net lögreglunnar óvirkt í hálfan sólarhring

Fjarskiptamiðstöð lögreglunnar og allt innra net lá niðri í um hálfan sólarhring um helgina og þurftu lögreglumenn að sinna verkefnum í gegnum TETRA-talstöðvar. Þetta staðfestir Rannveig Þórisdóttir, sviðsstjóri þjónustusviðs hjá ríkislögreglustjóra.Hún segir að bilun í kælikerfi í tölvusal hafi orðið til þess að netkerfi og fjarskiptamiðstöð lögreglunnar datt út.„Bilunin varði sem betur fer ekki lengi. Milli fimm og sex á laugardagsmorgun voru helstu kerfi að fara í gang.“Rannveig segir að lögreglu hafi borist um tíu útköll á þeim tíma sem kerfið lá niðri og hafi lögreglumenn notast við TETRA-talstöðvar. Hún segist ekki hafa upplýsingar um að þetta hafi haft áhrif á útköll né þjónustu við borgara.„Þetta hafði þó víðtæk áhrif og hefur það inn í vikuna. Öll helstu kerfi eru komin í gang, en
Allt innra net lögreglunnar óvirkt í hálfan sólarhring

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta