Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Lögregla átalin fyrir að vanrækja hlutverk sitt við rannsókn á nauðgun

Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu telur að starfsmenn lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hafi viðhaft ámælisverða starfshætti við rannsókn á nauðgun.Nefndin segir embættið hafa látið hjá líða að sinna lögmætu hlutverki sínu við upphaf rannsóknar og ekki tekið skýrslur af meintum sakborningi og vitnum fyrr en rúmum tveimur árum eftir meint brot. Auk þess taldi hún ummæli rannsóknarlögreglumanns, sem bað sakborning afsökunar á að hafa þurft að kalla hann í skýrslutöku, óheppileg.Nefndinni barst erindi frá konu sem taldi að starfsmenn embættisins sem fóru með málið hafi viljandi eyðilagt rannsókn þess. Nefndin óskaði eftir upplýsingum frá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu. Svarbréfi embættisins fylgdu hljóðupptökur af skýrslutökum vegna rannsóknarinnar.Nefndin vísaði erindinu frá
Lögregla átalin fyrir að vanrækja hlutverk sitt við rannsókn á nauðgun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta