Frá vettvangi sprengingarinnar.RÚV / Ragnar VisageEinn þeirra sem slösuðust í sprengingu í Fóðurblöndunni á föstudagsmorgun er útskrifaður af Landspítalanum og annar er á batavegi. Þetta segir Guðmundur Páll Jónsson lögreglufulltrúi í samtali við fréttastofu. Einn lést í sprengingunni.Guðmundur segir orsök sprengingarinnar til rannsóknar og hún muni taka nokkurn tíma.