Þjóðaröryggisráð Írans hótar því að leggja tundurdufl þvert yfir Persaflóa ef árásir verða gerðar á strandlengju landsins eða eyjur. Í yfirlýsingu ráðsins segir að allar helstu leiðir um flóann myndu því lokast ef árás yrði gerð.„Komi til þess þá verður staðan á Persaflóa því sem næst sú sama og í Hormússundi í langan tíma,“ segir í yfirlýsingu ráðsins.Á laugardag krafðist Donald Trump Bandaríkjaforseti þess að Íranar opnuðu aftur fyrir alla skipaumferð um Hormússund innan tveggja sólarhringa. Hann hótaði því að orkuverum landsins yrði gjöreytt ef Íranar stæðu ekki við sitt.Írönsk stjórnvöld hafa hleypt skipum nokkurra vinveittra þjóða, á borð við Kína, Indland og Pakistan, í gegnum Hormússund. Árásir hafa aftur á móti verið gerðar á skip þeirra sem írönsk stjórnvöld telja óvinveitt. MAR