Helga Snjólfsdóttir verkfræðingur og Yogakennari segir mikla meðvirkni hafa einkennt íslenska samfélagsgerð í gegnum árin. Helga er gestur í nýjasta í hlaðvarpi Sölva Tryggvasonar og hún segir eðlilegt að eldri kynslóðir á Íslandi hafi þróað með sér ákveðin hegðunarmynstur út frá þeim aðstæðum sem við bjuggum við. En verkefni margra fullorðinna í dag sé að kynnast sjálfum sér upp á nýtt og afvirkja gömul forrit.