Olíuverð heldur áfram að hækka af ótta við að stríðið í Mið-Austurlöndum dragist á langinn. Skömmu eftir að viðskipti hófust á Asíumarkaði á mánudagsmorgni að staðartíma var verðið á tunnu af Brent-Norðursjávarolíu, til afhendingar í maí, 111 bandaríkjadalir.Tunnuverð á Texas Intermediate hækkaði um 1,8 prósent og fór rétt yfir hundrað dali. Verðið var 67,02 dalir og 72,48 dalir á tunnuna 27. febrúar, daginn áður en Ísrael og Bandaríkin réðust á Íran.Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði um helgina Írönum gereyðingu orkuinnviða innan tveggja sólarhringa opnuðu þeir ekki siglingaleiðina um Hormússund og Ísraelsstjórn lýsti yfir áframhaldandi árásum á Íran og Hezbollah í Líbanon.Öll merki eru því um að stríðsátökum linni ekki næstu vikurnar hið minnsta og að siglingar með olíu um Hormússund