Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Golob forsætisráðherra lýsir yfir sigri þótt nánast engu muni í atkvæðafjölda

Robert Golob, frjálslyndur forsætisráðherra Slóveníu, hefur lýst yfir sigri í þingkosningum sem haldnar voru í dag. Opinberar niðurstöður sýna þó að íhaldssamur Lýðræðisflokkur Janez Janša fékk nánast jafnmörg atkvæði.Frelsishreyfing Golobs hafði afgerandi betur í kosningum fyrir fjórum árum. Þegar nánast öll atkvæði hafa verið talin hlaut hreyfingin 28,54 prósent atkvæða og 29 þingsæti og Lýðræðisflokkurinn 28,17 af hundraði og 28 sæti.Fjöldi smáflokka fær það sem eftir stendur af atkvæðum og greinendur segja að þrautin þyngri verði að mynda starfhæfa ríkisstjórn. Golob sagðist ætla að mynda sterka ríkisstjórn, áður en niðurstöður lágu fyrir.Í ræðu frammi fyrir stuðningsfólki sínu sagði Golob að fram undan væru erfiðar stjórnarmyndunarviðræður og að fullveldi Slóveníu væri ekki umsemjanle
Golob forsætisráðherra lýsir yfir sigri þótt nánast engu muni í atkvæðafjölda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta