Útlit er fyrir spennandi þingkosningar í Danmörku miðað við könnun sem danska ríkisútvarpið birti í dag. Kosningarnar eru á þriðjudag en í kvöld fóru fram lokakappræður frambjóðenda.Stjórnmálin í Danmörku hafa löngum skipst í tvær blokkir, þá bláu á hægri vængnum og rauðu á vinstri vængnum. Stærsti flokkur þeirrar blokkar sem nær meirihluta á þingi hefur jafnan fengið stjórnarmyndunarumboð.Með tilkomu flokksins Moderaterne, sem Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, stofnaði eftir að hann yfirgaf Venstre, hefur landslagið riðlast. Samkvæmt könnuninni nær vinstri blokkin 83 þingmönnum, sú hægri 80 og Moderaterne 12.Ef niðurstöður skoðanakönnunarinnar raungerðust næðu því hvorug blokkin meirihluta á þingi, 90 þingmönnum, nema með samstarfi við Moderaterne. „ÞITT ATKVÆÐI GETUR R