Fjöldi sendibíla sem eru í útleigu hefur meira en þrjátíufaldast á tveimur áratugum. Flestum þeirra hefur verið breytt í húsbíla. Dæmi eru um að slíkar breytingar hafi valdið meiðslum á farþegum.Í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa á banaslysi í Berufirði í fyrra, þegar fólksbifreið og lítil sendibifreið rákust saman, með þeim afleiðingum að ökumaður fólksbílsins lést, kom fram að búið var að fjarlægja gler úr skilrúmi milli farþegarýmis og farangursrýmis sendibílsins og því var opið þar á milli, en eldunar- og svefnaðstaða hafði verið útbúin í farangursrýminu. Innréttingar losnuðu við áreksturinn og gengu að hluta inn í farþegarýmið í gegnum opið á skilrúminu, en ökumaður og farþegi sendibílsins slösuðust alvarlega. Enginn loftpúði var hjá farþegasætinu.Ljóst er að þær breytingar sem