Kvenfélagskonur um allt land láta sitt ekki eftir liggja þegar kemur að gefa peninga til líknar-, mennta-, menningar- og umhverfismála en konurnar gáfu um 85 milljónir króna á árinu 2024. „Konurnar eru hörkuduglegar og vinna þrekvirki þegar það er verið að fara í söfnun,“ segir forseti Kvenfélagasambands Íslands.73. formannaráðsfundur Kvenfélagasambands Íslands var haldinn á Hótel Vesturlandi í Borgarnesi í lok febrúar en fundinn sóttu formenn og fulltrúar þeirra kvenfélaga sem eiga aðild að Kvenfélagasambandi Íslands. Fram kom að landsþing sambandsins verður haldið í Vík í Mýrdal í október 2027 en búist er við um 250 konum á þingið. Þá hefur kvenfélagasambandið tekið að sér að sjá um og bjóða á Evrópuþing samtaka dreifbýliskvenna vorið 2028 en reiknað er með rúmlega 100 konum á það þing.E