Ungverski utanríkisráðherrann Péter Szijjártó er sagður hafa lekið upplýsingum til Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands. Þetta kemur fram í umfjöllun The Washington PostSzijjártó er lykilmaður í ríkisstjórn Viktors Orbáns, sem er talin höll undir Rússa. Alls hefur hann hefur farið í 16 opinberar heimsóknir til Rússlands síðan innrásin í Úkraínu hófst árið 2022.Szijjártó brást ókvæða við umfjöllun Washington Post eftir að Radosław Sikorski, utanríkisráðherra Póllands, vakti athygli á málinu á samfélagsmiðlinum X. Hann sagði umfjöllunina falsfréttir og tilraun til að hafa áhrif á komandi þingkosningar í Ungverjalandi sem fram fara þann 12. apríl.Donald Tusk forsætisráðherra Póllands sagði að það kæmi sér ekki á óvart að Szijjártó eða aðrir innan ríkisstjórnar Orbán hefðu veitt upplýsing