Bygging menningarhúss á Sauðárkróki er í fullum undirbúningi og áætluð verklok eru í lok árs 2027. Með undirritun samnings sveitarfélagsins við ríkið var byggingin sett í fastan farveg en kostnaðurinn var áætlaður ríflega 1,5 milljarðar króna.Samningurinn við ríkið, sem undirritaður var vorið 2023, kveður á um að ríkið greiði 60% kostnaðarins við bygginguna, eða að hámarki 910 milljónir en sveitarfélagið 40%. Ljóst er að frá þeim tíma sem liðið hefur frá undirritun hefur byggingarvísitala hækkað og búast má við að verkefnið verði dýrara.„Í samningnum er þetta bara föst tala og það er ekki gert ráð fyrir því að hún hækki samkvæmt samningnum. Við erum nú þegar búnir að undirbúa forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar að við munum koma og tala við þá þegar þetta kemst í gang því það er eðlilegt að hl