Fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Starfsgreinasambands Íslands tókust á um kjarasamninga í Sprengisandi í morgun. Formaðurinn telur háa verðbólgu bitna hvað mest á tekjulægsta fólkinu og að það sé „galið“ hvernig kjarasamningaviðræður ríkis og sveitarfélaga fóru. Ráðherrann segir grundvallarvandamálið vera að laun geti ekki hækkað umfram hagvöxt.