Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hóta því að mikilvægir innviðir verði fyrir óafturkræfum skemmdum

Íranar vara við óafturkræfum skemmdum á mikilvægum innviðum í Mið-Austurlöndum ráðist Bandaríkin á orkuver landsins. Donald Trump Bandaríkjaforseti gaf Írönum tveggja sólarhringa frest til að opna fyrir skipaumferð um Hormússund áður en Bandaríkjaher hefur gereyðingu orkuvera landsins. OLÍUVINNSLUSTÖÐVAR OG ORKUINNVIÐIR LÖGMÆT SKOTMÖRK Trump sagði á samfélagsmiðli sínum Truth Social að því stærsta verði tortímt fyrst. Talið er að yfirlýsingu forsetans sé ætlað að róa orkumarkaðinn og draga úr efasemdum samherja Bandaríkjanna. Um tuttugu þeirra hafa heitið liðsinni við að tryggja siglingar um Hormússund.Um það bil tuttugu prósent flutninga með hráolíu og fljótandi gas fer um sundið á friðartímum. Eldsneytisverð hefur hækkað verulega vegna lokunarinnar og verðbólguuggur vex eftir því sem
Hóta því að mikilvægir innviðir verði fyrir óafturkræfum skemmdum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta