Búið er að opna hringveginn um Fagradal en Fjarðarheiði er enn lokuð.Krapi eða þæfingur er á nokkrum leiðum eystra. Snjóþekja er víða en hálka er á stöku stað. Ófært er um Öxi, Breiðdalsheiði og Vatnsskarð eystra.Vegagerðin vekur athygli á því að hreindýr eru mjög víða á svæðinu frá Almannaskarðsgöngum að Djúpavogi og eru vegfarendur beðnir um að aka varlega.Þá er varað við því að holur hafa myndast mjög víða í vegum á svæðinu.Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir fyrir Suðurland og Suðausturland frá hádegi á morgun, vegna austan- og norðaustan hríðar, hvassviðris eða storms.Vindhviður gætu náð allt að 40 metrum á sekúndu í Mýrdal, Öræfum og undir Eyjafjöllum.Þær gilda fram á þriðjudagsmorgun.