Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Irpa: Ekki nógu sannfærandi hrollvekja en gengur upp á endanum

Nýjasta hrollvekja Hildar Knútsdóttur heitir Irpa og fjallar um par sem ákveður að pakka saman öllu sínu og flytja á litla eyju fyrir austan land þar sem dularfullir hlutir gerast.„Edda fer þangað með manninum sínum. Hún hefur misst fóstur oftar en einu sinni og ætlar bara að byrja nýtt líf. Þau halda að þau séu bara tvö á eyjunni en svo fer Edda að sjá hvítklædda konu. Þá er maður nokkuð viss um að maður sé að lesa hrollvekju,“ segir Kolbrún Bergþórsdóttir, gagnrýnandi Kiljunnar á RÚV.„Bókin fer mjög hægt af stað og mér finnst Hildi oft hafa tekist betur upp við að skapa spennu.“Hildur er þekkt fyrir ungmennabækur sínar en hefur verið að senda frá sér hrollvekjur í styttri kantinum að undanförnu við góðar undirtektir, bæði hér heima og annars staðar. Irpa er aðeins lengri en hennar fyrri
Irpa: Ekki nógu sannfærandi hrollvekja en gengur upp á endanum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta