Úkraínski herinn felldi um eitt þúsund rússneska hermenn á 24 klukkutímum yfir helgina.Yfirmenn úkraínska hersins greindu frá mannfallinu í gegnum facebook síðu sína og tóku fram að einnig hefði þremur loftvarnarkerfum Rússa verið grandað og þremur skriðdrekum. Einni rússneskri þyrlu hefði þá verið grandað á laugardaginn.Í síðustu viku hefði mannfall meðal rússneskra hermanna einnig verið mikið og suma daga hefðu á milli 1500 og 1700 hermenn verið felldir. Þær tölur eru um helmingi hærri en flesta aðra daga yfir veturinn og því sé augljóst að aukinn kraftur sé kominn í áhlaup hersins.Greinendur bandarísku hugveitunnar ISW eða Institue for the Study of War sögðu á laugardag að líklega væru Rússar að hefja vorsókn sína þetta árið. Talsvert dregst úr hernaði yfir vetrarmánuðina í Úkraínu þar