Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Grunur um brot gegn barni á leikskóla í Garðabæ

Barnavernd Garðabæjar hefur til rannsóknar grun um að brotið hafi verið gegn barni á leikskólanum Krakkakoti á Álftanesi. Málið kom upp í liðinni viku og foreldrar voru upplýstir um það í morgun.Samkvæmt upplýsingum fréttastofu kom málið upp á fimmtudaginn í síðustu viku. Foreldrar barna á leikskólanum voru upplýstir um málið á fundi í morgun.Guðný Hrönn Antonsdóttir, samskiptastjóri hjá Garðabæ, staðfestir við fréttastofu að grunur um brot gegn barnaverndarlögum sé til rannsóknar hjá barnavernd. Hún segist ekki geta gefið upp hvers eðlis brotið er, né hvort það var af hendi starfsmanns. Þá gefur hún ekki upp hvort málið hafi verið tilkynnt til lögreglu.Krakkakot er á Álftanesi. Þar eru börn á aldrinum eins til fimm ára. Á leikskólanum eru um það bil hundrað börn og 28 starfsmenn. Boðað va
Grunur um brot gegn barni á leikskóla í Garðabæ

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta