Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Maðurinn sem var stunginn í nótt er ekki í lífshættu

Sá sem var stunginn með hnífi í miðborg Reykjavíkur í nótt er ekki í lífshættu. Þetta segir Árni Friðleifsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, í samtali við fréttastofu.Árásin átti sér stað fyrir utan skemmtistað í Tryggvagötu rétt fyrir klukkan þrjú í nótt.Gerandi flúði af vettvangi en var handtekinn í leigubíl skömmu síðar blóðugur og með stunguvopnið á sér.Árni segir myndavélakerfið í miðbæ Reykjavíkur hafa gert sitt gagn þar sem hægt var að rekja ferðir mannsins í leigubílinn. Mikilvægt sé að ná fólki sem fyrst eftir árásir sem þessar.Einn var handtekinn vegna kannabisræktunar í fjölbýlishúsi í Mosfellsbæ í nótt. Umfang framleiðslunnar var ekki mikið að mati lögreglu.Árni vildi lík benda ökumönnum á að fara varlega í umferðinni í dag. Hægt er að athuga færð á vegum inni á umferdin.is.
Maðurinn sem var stunginn í nótt er ekki í lífshættu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta