Maður á þrítugsaldri var fluttur á bráðamóttöku eftir að hafa verið stunginn með eggvopni í kvið og læri í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Árásarmaðurinn lagði á flótta eftir árásina en fannst ellefu mínútum síðar með hnífinn á sér og með blóðugar hendur. Lögreglan segir eftirlitsmyndakerfið enn og aftur hafa sannað sig.