Allt útlit er fyrir æsispennandi kosningar í Danmörku á þriðjudaginn. Moeraterne, miðjuflokkur Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra, verður líklega í lykilstöðuEkki er mikill munur á hægri og vinstri blokkunum svokölluðu, samkvæmt könnun danska ríkisútvarpsins, DR, sem gefin var út í morgun. Þó er ljóst að samsteypustjórn Mette Frederiksen sem teygir sig milli blokka og samanstendur af Jafnaðarmönnum, Venstre og Moderaterne á litla möguleika á að halda völdum, enda mælast þeir samtals með 61 þingsæti, en 90 sæti þarf til að mynda meirihluta. Jafnaðarmannaflokkurinn mælist langstærstur með 20 prósenta fylgi og 34 þingmenn en missa sextán þingmenn frá síðustu kosningum 2022. Sósíalíski þjóðarflokkurinn kemur næstur með 22 þingmenn og bætir við sig. Þar á eftir koma þrír flokkar af hægri væ