Umferðaróhapp varð í morgun í Fáskrúðsfjarðargöngum vegna bílveltu, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.Vinna er í gangi á vettvangi og göngunum lokað á meðan. Ökumaður, sem var einn í bifreið sinni, hefur verið fluttur til aðhlynningar á sjúkrastofnun, ekki talinn alvarlega slasaður.Þess er vænst að göngin opni fljótlega að nýju.Mynd úr safni.Vegagerðin