Gul veðurviðvörun vegna hríðarveðurs og hvassviðris er í gildi fram undir hádegi á Suðausturlandi, Austfjörðum og á Austurlandi að Glettingi. Reikna má með samgöngutruflunum og litlu skyggni á köflum. Krapi er frá Vogum að Keflavíkurflugvelli og á Grindavíkurvegi. Þjóðvegur eitt á milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs hefur verið lokaður síðan í gærkvöld vegna veðurs og einnig vegirnir um Fjarðarheiði og Fagradal. Ófært er um Öxl og Breiðdalsheiði.Veðurspáin er annars svohljóðandi:Allhvass norðanvindur, hvassviðri eða stormur og snjókoma á austanverðu landinu, en hægari vestanátt og él vestantil. Dregur úr vindi í dag, vestlæg átt síðdegis og él í flestum landshlutum. Frost víða allt að fimm stig.Gengur í allhvassan austanvind, hvassviðri eða storm á morgun með snjókomu, fyrst á sunnanverðu