Söngleikurinn Kabarett heillaði leikstjórann Bjart Örn Bachmann um leið og hann uppgötvaði verkið fyrst. Nú hefur hið nýstofnaða Leikhús ókunnuga fólksins umbreytt Þjóðleikhúskjallaranum í hinn glæsilega kabarettklúbb Kit Kat og býður áhorfendur velkomna.Söngleikurinn er byggður á leikriti sem fjallar um endurminningar frá Berlínarárum ungs rithöfundar. Weimar-lýðveldið er við það að líða undir lok, Adolf Hitler er vinsæll pólitíkus, hægrimenn og vinstrimenn berjast á götum úti og samtímis dunar jazzinn í klúbbum borgarinnar.Lóa Björk Björnsdóttir leit við á æfingu hjá hópnum í vikunni fyrir frumsýningu og ræddi við Bjart og Almar Blæ Sigurjónsson, sem fer með hlutverk skemmtanastjórans, í Lestinni á Rás 1. ENGAR TVÆR SÝNINGAR ALVEG EINS „Sýningin er alveg í þróun og þetta er mjög heims