Viðbótarkostnaður vegna ferðalaga fólks með leiðsöguhunda fellur á ríkissjóð en ekki notendur sjálfa, nái reglugerð félags- og húsnæðismálaráðherra fram að ganga.Ragnar Þór Ingólfsson er félags- og húsnæðismálaráðherra.RÚV / Ragnar VisageHún hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda og nær til leiðsöguhunda sem Sjónstöðin hefur lögum samkvæmt úthlutað sem hjálpartæki. Viðbótarkostnaður fellur til vegna skilyrða í reglum sem gera ráð fyrir einangrun hunda og katta við innflutning.Reglugerðinni er ætlað að tryggja jafnræði notenda leiðsöguhunda og bæta aðgengi þeirra að ferðalögum, að sögn Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. Frestur til að senda inn umsögn er til 2. apríl.