Íranska heilbrigðisráðuneytið segir yfir 1.500 manns hafa verið drepna frá upphafi stríðsins fyrir þremur vikum, minnst 200 þeirra undir átján ára aldri. Hið minnsta 21 þúsund hefur særst eða örkumlast í árásum, að sögn ráðuneytisins.Á þriðja hundrað heilbrigðisstofnana hafa skemmst eða eyðilagst og á þriðja tug heilbrigðisstarfsmanna týnt lífi.Ísraelsher hélt uppteknum hætti við eldflaugaárásir á Teheran í nótt og varnarmálaráðuneyti Sádi Arabíu greinir frá eldflaugaárás á höfuðborgina Ríad í gærkvöld. Ein þeirra var skotin niður en tvær skullu til jarðar á óbyggðu svæði.Flugher Sameinuðu arabísku furstadæmanna skaut niður þrjá íranska dróna í austanverðu landinu í morgun.Eldflaugar hafa einnig verið stöðvaðar. Varnarmálaráðuneytið segir tortímingu árásartækjanna útskýra háværar sprenging