Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Viðræðum um frið fram haldið í dag

Sendinefnd úkraínskra stjórnvalda heldur í dag áfram viðræðum við bandaríska milligöngumenn um frið við Rússa í innrásarstríðinu.Steve Witkoff fer fyrir bandarísku sendinefndinni.AP / Mark SchiefelbeinFyrir bandarísku nefndinni fara erindrekinn Steve Witkoff og Jared Kushner, tengdasonur Donalds Trump forseta. Fundahöldum verður fram haldið í Flórída í dag. Úkraínumenn segjast bjartsýnir á lausn sem geti leitt til loka stríðsins sem staðið hefur rúm fjögur ár.Aðalsamningamaðurinn Rustem Umerov sagði að einblínt hefði verið á helstu lykilatriði og leiðir til að halda viðræðunum áfram. Sjónum hafi sérstaklega verið beint að því hvernig komast mætti að tryggri, sameiginlegri niðurstöðu.
Viðræðum um frið fram haldið í dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta