Donald Trump Bandaríkjaforseti hótar gereyðingu allra raforkuvera Írans opni byltingarvörðurinn ekki fyrir alla skipaumferð um Hormússund. Hann gaf Írönum tveggja sólarhringa frest áður en Bandaríkjaher léti til skarar skríða gegn orkuverunum, því stærsta fyrst, eins og hann orðaði það í færslu á Truth Social.Íransher sagðist á móti leggja til atlögu að orkuinnviðum og afsöltunarstöðvum í eigu Bandaríkjanna og nágrannaríkjanna. Bandaríkjaher sagðist í gær hafa laskað byrgi Íranshers sem beindi vopnum í átt að sundinu.Talið er að yfirlýsingu forsetans sé ætlað að róa orkumarkaðinn og draga úr efasemdum samherja Bandaríkjanna. Um tveir tugir þeirra hafa heitið liðsinni við að tryggja siglingar um Hormússund.Sundið hefur verið meira og minna lokað frá því Ísrael og Bandaríkin hófu stríðið geg