Gamalt og lúið raforkukerfi Kúbu hefur leitt af sér umfangsmikið og langvarandi rafmagnsleysi. Rafmagnslaust varð um gervalla Kúbu í gærkvöld, öðru sinni á innan við viku.Orkumálaráðuneyti Kúbu greindi frá þessu í tilkynningu á X og sagði viðgerð þegar hafna. Straumrof varð í höfuðborginni Havana skömmu fyrir dagsetur. Orkuskortur hefur ríkt á Kúbu lengi, enda raforkukerfið gamalt og úr sér gengið, og hafnbann Bandaríkjanna á olíuflutninga hefur bætt gráu ofan á svart.Engin olía hefur borist til Kúbu síðan 9. janúar sem veldur því að ekki er til eldsneyti fyrir orkustöðvar sem aftur leiðir af sér rafmagnsleysi lungann úr sólarhringnum víðs vegar um eyjuna. Mörg flugfélög hafa af sömu ástæðu látið af ferðum til Kúbu sem er þungt högg fyrir ferðamannageirann, eina helstu tekjulind landsins.V