Robert Mueller, fyrrverandi forstjóri Alríkislögreglu Bandaríkjanna, er látinn 81 árs að aldri. Mueller byggði upp hryðjuverkadeild stofnunarinnar eftir árásina á Bandaríkin í september 2001 og stjórnaði rannsókn dómsmálaráðuneytisins um meint tengsl Rússa við framboð Donalds Trump í forsetakosningunum 2016.Mueller var kallaður til starfans eftir að Trump rak arftaka hans, James Comey, úr starfi forstjóra FBI árið 2017. Trump kallaði rannsókn Muellers nornaveiðar og fagnaði andláti hans í færslu á Truth Social með þeim orðum að hann gæti ekki lengur sært saklaust fólk.Þingnefnd yfirheyrði Mueller sumarið 2019 í beinni útsendingu, sem vakti mikla athygli, þar sem hann sagði umfangsmikla skýrslu sína ekki hreinsa Trump af áburðinum um samvinnu við Rússa.Rannsóknin tók 22 mánuði og leiddi af