Gul veðurviðvörun er í gildi frá miðnætti á Suðausturlandi og Austfjörðum. Klukkan eitt í nótt tekur gul viðvörun síðan einnig gildi á Austurlandi að Glettingi. Búist er við norðan- og norðvestanhríð á austanverðu landinu og vestan- og norðvestanhríð á Suðausturlandi. Viðvaranirnar gilda fram undir hádegi. Þá má reikna með samgöngutruflunum og litlu skyggni á köflum. Þjóðvegi eitt á milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs var til að mynda lokað klukkan ellefu í kvöld vegna veðurs. Vegunum um Fjarðarheiði og Fagradal var lokað klukkan tíu. Icelandair hefur aflýst komu fimm þotna til Keflavíkur frá Norður-Ameríku á sjöunda tímanum í fyrramálið samkvæmt upplýsingum á vef Isavia. Vélarnar eru að koma frá Denver, Orlando, New York, Seattle, Portland og Vancouver. Annað millilanda- og innanlandsflug