„Við strákarnir spiluðum á böllum og við vorum alltaf að reyna að koma okkur einhvers staðar að til að spila. Þegar við vorum um fermingu vorum við farnir að spila í pásunni hjá Hauki Morthens,“ segir Kristján Kristjánsson, KK, í viðtali við sunnudagsblað Morgunblaðsins þar sem hann gerir rúmlega hálfrar aldar ferli skil.