Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þýskt herskip við Íslandsstrendur

Þýskt herskip, sem nú er statt utan við Dýrafjörð á Vestfjörðum, er ekki við Ísland í tengslum við erlenda snekkju sem meinað var um hafnarkomu á Akureyri fyrr í dag. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, staðfestir þetta.Mbl.is greindi frá því í kvöld að þýskt herskip væri á siglingu við landið. Samkvæmt Marine Traffic lagði skipið, NATO WARSHIP 219, af stað frá Þýskalandi í gær.Í svari við fyrirspurn fréttastofu segir Ásgeir Erlendsson að algengt sé að skip erlendra ríkja sigli á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Skipið sé hér með leyfi íslenskra stjórnvalda og tengist fyrrnefndri snekkju ekki með neinum hætti.Herskipið sem um ræðir er statt undan Dýrafirði.marinetraffic.com
Þýskt herskip við Íslandsstrendur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta