Erlendri snekkju var meinuð hafnarkoma á Akureyri fyrr í dag á grundvelli þvingunaraðgerða gegn Rússlandi fyrir innrás sína í Úkraínu sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja.Þetta kemur fram í svari Landhelgisgæslunnar eftir fyrirspurn fréttastofu.Í svari frá Landhelgisgæslunni segir að ákvörðunin hafi byggt á þeim hluta þvingunaraðgerðanna sem kveður á um að skip sem siglir undir rússneskum fána og hefur skipt um fánaríki eftir 24. febrúar 2022 er óheimill aðgangur að höfn í ríki á EES-svæðinu.Þar segir einnig að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafi borist komutilkynning frá snekkjunni sem siglir undir fána Panama en snekkjan var á leið frá Istanbúl til Akureyrar með 26 manns um borð. SNEKKJAN ENN Í EYJAFIRÐI OG MÁLIÐ Í VINNSLU Við nánari skoðun hafi komið í ljós að skipið sig