Sjór hefur ítrekað flætt yfir bílastæðið við Reynisfjöru og heim að veitingaskálanum eftir gríðarmikið landrof í fjörunni. Sjórinn felldi viðvörunarskilti um koll og hreif eitt þeirra með sér á haf út. Landeigandi segir þörf á miklum framkvæmdum til að koma í veg fyrir skemmdir á bílastæðinu.„Síðasta sunnudag þá gekk mikið á, það var sunnanátt og ölduhæðin var mikil og þá brugðum við á það ráð að nota gröfur sem við eigum og mokuðum hérna skurði og þá náði maður að verja okkur svona að mestu leyti,“ segir Ólafur Steinar Björnsson, bóndi á Reyni og einn landeigenda í Reynisfjöru.Sjór hefur ítrekað flætt yfir bílastæðið við Reynisfjöru og fólk átti fótum sínum fjör að launa í stórstreymi í vikunni. Sjórinn hefur grafið stóran hluta úr hlíðinni ofan við fjöruna.„Atlantshafið hefur greiða leið