Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hafa beðið lengi eftir bótum og íhuga mál við ríkið

Lögmaður fólks sem vistað var á barnaheimilinu á Hjalteyri segir umbjóðendur sína skoða að leita til dómstóla til að fá greiddar bætur vegna þess tjóns sem vistin olli þeim. Lengi hafi verið beðið eftir bótunum.Fólk sem dvaldi við Hjalteyri á barnsaldri hefur lýst illri meðferð og kynferðisofbeldi af hálfu þeirra sem ráku heimilið sem var starfrækt árin 1972 til 1979.Gísli Kr. Björnsson, lögmaður fólksins, lítur svo á að ríkið hafi þegar viðurkennt bótaábyrgð í þeim frumvörpum um skaðabætur sem lögð voru fram í tíð fyrri ríkisstjórna. „Það var sagt við þau á fundum bæði í dómsmálaráðuneytinu og forsætisráðuneytinu: „Þið urðuð fyrir tjóni, við viðurkennum það. Við ætlum að leggja fram lagafrumvarp.“ Svo bara gerist ekki neitt,“ segir hann.Farið hefur verið fram á 15 milljónir í skaðabætur á
Hafa beðið lengi eftir bótum og íhuga mál við ríkið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta