Þórhildur Edda Eiríksdóttir veiktist ásamt fjölskyldu sinni í febrúar 2024 af veirusýkingu sem ekki hefur verið greind nákvæmlega. Hún náði sér ekki að fullu og hefur nú verið greind með ME. Veikindin gerðu það að verkum að líf hennar tók algjöra u-beygju. En þrátt fyrir sorgina sem fylgir því að missa fyrra líf er Þórhildur staðráðin í að gefast ekki upp. Í dag snýst lífið um að finna gleði í litlu hlutunum og aðlaga sig að nýjum aðstæðum.