Beinagrindur frá tímum Galla sem fundist hafa í frönsku borginni Dijon vekja áleitnar spurningar meðal vísindamanna um greftrunarsiði þjóðflokksins. Börn að leik á skólalóð í Dijon fundu nýverið merkilega vel varðveitta beinagrind af karlmanni sitjandi í hringlaga gryfju og andlitið sneri til vesturs.Hendurnar hvíla í kjöltu beinagrindarinnar sem talin er vera frá árunum þrjú til tvö hundruð fyrir okkar tímatal. Margar samskonar beinagrindur hafa fundist í borginni og vísindamenn vilja átta sig á hví fólkið var jarðsett með þessum hætti og jafnvel hvort það hafi verið grafið lifandi.Hvort greftrunin hafi verið refsing eða verðlaun hinna voldugu, nokkrar beinagrindanna sýna merki ofbeldis og á einni má sjá banvænan höfuðáverka. Allar beinagrindurnar eru af fullorðnum karlmönnum og ein tilhe