Á síðastliðnum árum hefur Rósa Ómarsdóttir skapað sér sérstöðu í íslensku sviðslistasenunni. Hún vinnur á mörkum listforma en dansinn er frumefnið. Síðasta stóra verkefni hennar var Molta sem sýnd var í Gerðarsafni fyrir tveimur árum. Sýningin var tilnefnd til Grímuverðlauna árið 2024 sem sýning ársins og Rósa hreppti verðlaunin sem danshöfundur ársins. Í Moltu beindi hún augum sínum að náttúrunni,...