Áttundi maðurinn sem handtekinn var í gær vegna alvarlegrar líkamsárásar í bílakjallara við Höfðatorg í Reykjavík aðfaranótt þriðjudags, var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í gærkvöldi. Árásin er rannsökuð sem tilraun til manndráps og rannsóknin er umfangsmikil.Þetta staðfestir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu.Fimm af þeim sem handteknir hafa verið vegna árásarinnar hefur verið sleppt úr haldi en tveir sitja nú í gæsluvarðhaldi.Allir handteknu eru erlendir ríkisborgarar með lítil tengsl við landið, að sögn Ævars. Einn þeirra þriggja sem urðu fyrir árásinni er Íslendingur. Hann var fluttur á gjörgæsludeild Landspítala eftir árásina en hefur verið útskrifaður þaðan. Hinir særðust min