Guðrún Hafsteinsdóttir gagnrýndi meðal annars efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar og áform hennar um að hefja aðildarviðræður við ESB í ræðu sinni á Flokkráðsfundi Sjálfstæðisflokksins í dag. Fjölmennt var á fundinum þar sem um 400 flokksmenn komu saman á Reykjavík Hilton Nordica.Guðrún hóf ræðu sína á að fara með kvæðið Hjartaprúður eftir Rudyard Kipling í þýðingu Stephans G. Stephanssonar. Kvæðið hefði verið ort um Theodore Roosvelt en það gæti allt eins átt við um Davíð Oddsson, fyrrum forsætisráðherra sem lést 1. mars.„Hann setti mark sitt á uppbyggingu borgarinnar og markaði djúp spor í þróun íslenskra stjórnmála og þjóðfélags í nærri hálfa öld sem borgarstjóri, forsætisráðherra, seðlabankastjóri og ritstjóri Morgunblaðsins,“ sagði Guðrún sem litaði ræðu sína víða með tilvitnunum í Daví