Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kristrún boðaði aukið samstarf ríkis og sveitarfélaga

Samfylkingin hélt flokksstjórnarfund í dag þar sem meðal annars voru kynntar áherslur fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí. Í ræðu sinni sagði Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, að áherslur flokksins sneru meðal annars að auknu samstarfi ríkis og bæja. Þessar áherslur væru til komnar eftir að efnt var til opinna funda í sveitarfélögum og var afrakstur þeirra kjarnaður í þrjú samvinnuverkefni með yfirskriftina : Tökum ábyrgð hvert á öðru:„Samvinnuverkefnin þrjú eru í fyrsta lagi að lækka kostnað barnafólks, meðal annars með þaki á leikskólagjöldum og lögfestingu á rétti til leikskólavistar frá lokum fæðingarorlofs í skrefum, með sameiginlegri fjármögnun ríkis og sveitarfélaga,“ sagði Kristrún í ræðu sinni.„Í öðru lagi leggur Samfylkingin áherslu á að við hlúum að fólkin
Kristrún boðaði aukið samstarf ríkis og sveitarfélaga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta