Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bandaríkjaforseti íhugar að draga úr hernaðaraðgerðum gegn Íran

Bandaríkjaforseti íhugar að draga úr hernaðaraðgerðum gegn Íran en varnarmálaráðherra Ísraels segir að árásir eigi eftir að aukast næstu daga. Íran skaut eldflaugum að sameiginlegri herstöð Bretlands og Bandaríkjanna í Indlandshafi í gær. BBC segir árásina hafa misheppnast. ÍRANSKAR ELDFLAUGAR NÁÐU EKKI AÐ HERSTÖÐ BRETLANDS OG BANDARÍKJANNA Bandaríska stórblaðið Wall Street journal greindi fyrst frá árásunum og hafði þær eftir háttsettum bandarískum embættismönnum. Breska ríkisútvarpið BBC staðfesti árásirnar og sagði tveimur írönskum eldflaugum hafa verið skotið að herstöðinni en að hvorug þeirra hafi náð þangað.Herstöðin er á Diego Garcia, afskekktri lítilli eyju í Indlandshafi, í um 4.000 kílómetra fjarlægð frá Íran.Varnarmálaráðuneyti Bretlands staðfesti hvorki né neitaði að árásin
Bandaríkjaforseti íhugar að draga úr hernaðaraðgerðum gegn Íran

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta