Breska ríkisstjórnin mun auka fjárveitingar til reksturs BBC World Service, alþjóðlegrar útvarpsstöðvar breska ríkisútvarpsins. Tvísýnt var um framtíð útvarpsstöðvarinnar fyrr á árinu.Breska utanríkis-, samveldis- og þróunarmálaskrifstofan, (Foreign, Commonwealth and Development Office) hefur samþykkt 33 milljóna punda hækkun á fjárframlagi til rekstursins, sem er 8% hækkun frá fjárframlögum frá síðasta ári, samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Tvísýnt var um reksturinn fyrr á þessu ári eða allt þar til breska ríkisstjórnin samþykkti áframhaldandi stuðning við útvarpsstöðina.Utanríkisráðherrann Yvette Cooper fagnar því að búið sé að tryggja rekstur stöðvarinnar. Á tímum upplýsingaóreiðu skipti útvarpsstöðin BBC World service hundruðum milljónum manna víðs vegar um heiminn miklu máli.