Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Millilanda- og innandlandsflug að mestu á áætlun í dag

Gular veðurviðvaranir munu flestar falla úr gildi kl. 8, utan Suðausturlands, en gul viðvörun verður áfram í gildi þar til klukkan níu.Öxnadalsheiði er lokuð og verður ekki opnuð fyrr en síðar í dag.Holtavörðuheiði er einnig lokuð og verða frekari upplýsingar veittar klukkan átta. Hjáleið er um Laxárdalsheiði og Bröttubrekku.Þungfært er um marga vegi á Vestfjörðum og vegurinn um Súðavíkurhlíð er lokaður. Ófært er á Steingrímsfjarðarheiði. Ófært er norður í Árneshrepp.Á Hellisheiði er hálka og éljagangur.Verið er að kanna ástand vega og færð víða um land og verða upplýsingar uppfærðar á vef Vegagerðarinnar; umferðin.is.
Millilanda- og innandlandsflug að mestu á áætlun í dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta