Djúp lægð á Grænlandssundi hefur valdið suðvestan hvassviðri eða stormi á landinu með dimmum éljum. Lægðin er farin að grynnast og vindinn lægir svo um munar með deginum, en áfram má þó búast við éljum. Það er frost um mestallt land, á bilinu 0 til 5 stig.