Stjórnvöld um veröld víða þurfa að vera duglegri að brýna fólk og fyrirtæki til orkusparnaðar, þar sem heimurinn standi frammi fyrir „alvarlegustu ógn sögunnar við orkuöryggi heimsins.“ Þetta hefur BBC eftir Faith Birol, forstöðumanni Alþjóðaorkustofnunarinnar í París, sem vísar til yfirstandandi stríðs Bandaríkjanna og Ísraels á hendur Íran og þeirrar röskunar á framleiðslu og flutningum á jarðefnaeldsneyti sem það hefur þegar valdið og ekki sér fyrir endann á.Fjallað var um þetta í Speglinum á föstudag. Hlusta má á þá umfjöllun í spilaranum hér að neðan eða lesa áfram þar fyrir neðan.Stríð Bandaríkjanna og Ísraels á hendur Íran er mesta ógn við orkuöryggi heimsins á síðari tímum. Þetta segir yfirmaður Alþjóðaorkustofnunarinnar. Stjórnvöld þurfa að stuðla að orkusparnaði og orkuskiptum af